|
|
Wednesday, August 18th
Á morgun skelli ég mér í smá ferðalag, heim til Íslands
Þá á að fljúga aftur heim á klakann. Tók þessa ákvörðun um síðustu helgi, þannig að það var ekki mikill fyrirvari. Hefði það ekki verið fyrir IcelandExpress væri þetta ómögulegt. Flugleiðir aftur á móti hefur engin sæti laus, nema þetta SagaKlass sitt. Væntanlega er þetta til að neyða fyrirtæki sem ætla að senda mann út með littlum fyrirvara að greiða yfir 70þ. kr., og það er bara aðra leið.
Ég var að flakka um á amazon, skoða nokkrar bækur, þegar ég rakst á uppástungu þeirra. Þetta er væntanlega gert af handahófi, en mér hefði ekki getað dottið í hug tvær jafn andstæðar bækur og þessar:
 Sú fyrri er vitaskuld pólitíski áróður gammla kommans með stóra hvíta skeggið, sem elskaði rauða litinn. Hin er pólitíski áróður Hayeks, þar sem hann vill vara við slæmum afleiðingum alræðiskerfa. Með öðrum orðum, þetta eru gagnstæðu pólarnir settir saman í tillöguni. Mér þótti þetta nokkuð skondið.
eyjo on 08.18.04 [link] [742 sayings]
Friday, July 23rd
10 ZŁOTYCH
Ég skellti mér út í búð í dag til að kaupa mér brauð og jógúrt. Ekkert sérstakt við það, nema að þegar ég ætlaði að greiða hafði ég skipti mynt upp í upphæðina, hefði það ekki verið fyrir því að ein krónan var ekki króna. Líklega hef ég einhvern tíman fengið pólska mynt til baka í skiptimynt í stað sænskri krónu án þess að taka eftir því. Nú er ég með þrjá mynt hér fyrir framan mig, 5 ISK, 1 SEK og 10 Zloty sem eru öll eins í laginu og lit, nema virði. Hver í ósköpunum hefur látið mig fá pólskan pening?
Svona til gamans getið þá voru þetta bara ágætis kaup hjá mér, í staðin fyrir 1 sænskra krónu fékk ég andvirði yfir 20 sænskra króna. Eða skv. oanda: 10 Polish Zloty = 20.66601 Swedish Krona 10 Polish Zloty = 196.339 Iceland Krona Þá er bara eitt vandamál, það er ekki hægt að skipta erlendri mynt, bara seðlum. En mér er svo sem sama, þetta fer bara í littla safnið mitt.
Hvað hefur maður svo lært af þessu? Jú, að athuga aðeins betur hvað maður fær til baka þegar maður er að versla.
eyjo on 07.23.04 [link] [208 sayings]
Thursday, July 22nd
Kaffi og Sígó
Við Gaui skelltum okkur í bíó eftir góðann kvöld snæðing. Þetta var bara svona spontant, vorum í raun á leið á vídeóleiguna þegar við löbbuðum frammhjá bíóinu, og ég vissi ekkert hvað hann var að draga mig inn á (hann vissi það nú lítið sjálfur). Ég tók bara eftir því að Bill Murray og Iggy Pop leika í henni og ákvað að leggja í þetta með honum. En myndin sem við droppuðum inn á heitir Coffee and Cigarettes eftir Jim Jarmusch (ítarleg umfjöllun um myndina). Þetta er ekki ein mynd heldur margar stuttmyndir, sú fyrsta tekin 1986 (þar leika Roberto Benigni, þá nokkuð óþekktur, og Steven Wright). Ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að halda um þetta fyrst, þetta er svona 'konsept-mynd', það er allt morandi af 'konseptum' í henni sem maður áttar sig svona smátt og smátt á. Hún fjallar um ýmsa 'daða tíma' hjá fólki, tíminn sem það situr í rólegheitum (eða órólegheitum) og drekkur kaffi með sígarettu í hendi. Flestir leika sjálfan sig í myndini, sem eru jafn ólíkir einstaklingar og Steve Buscemi (leikur ekki sjálfan sig og var óþekktur þegar hans atriði var tekið upp) og RZA ásamt félaga sínum GZA (rappararnir úr Wu Tang Clan). En, með öðrum orðum, fyrir þá sem fíla myndir sem byggja á hugmyndum, en raunar lítið gerist í þeim annað en að fólk hangi yfir kaffi bolla, þá mæli ég með henni.
eyjo on 07.22.04 [link] [769 sayings]
Saturday, July 17th
Sumarið er ljúft í Gautaborg
Hann valli var hér í Gautaborg í síðustu viku. Ég var fyrst í dag að nenna að fara út með staflan af bjórdósum ... sem sagt það fór vel um okkur. Hann kom mér í kynnti við Havana Club, sem kanar t.d. þekkja eflaust ekki rassgat, því þetta er einmitt frá Kúbu. Mér tókst að sýna honum það helst um þessar slóðir sem vert er að skoða. Kanski ætti maður að drullast til að setja inn nokkrar af myndunum sem ég tók. Við tókum einn daginn bíl á leigu og keyrðum upp til Fjällbacka, lítið sjávarþorp sem er orðið drauma sumardvalastaður (enda ríkir Normenn búnir að kaupa upp hálfa strandlínuna).
Pétur sannfærði mig um það hve JavaScript sé vanmetið tól. Hann hafði gert síðu sem iðaði af lífi, en þó það virkaði þannig, þá var hún ekki gerð með flassi. Hann hafði nefnilega þraukað að skrifa JavaScriptur sem keyrðu gif myndir hægri vinstri um skjáinn í tímaröð. Þetta allavegna náði að sannfæra mig. Svona í ganni þá reyndi ég sjálfur á að gera eithvað sniðugt í þessu. Mér tókst að skrifa tölvuleik. En ekki hvaða tölvuleik sem er, heldur LilleMayer. Vonadi þykir einhverjum þetta flott hjá mér...
Uppfærsla: Jæja, ég drullaðist til að setja inn myndir. Ég skellti þessu meira að segja upp á netþjón á Íslandi þannig að þetta verður innanlands niðurhlað fyrir þá sem búa undir því oki. Eitt þó hræðilegt við þetta easy.go account mitt, það virðist ekki vera hægt að tengjast með ftp á það. Ég þurfti að pilla inn hverri skrá fyrir sig...
eyjo on 07.17.04 [link] [754 sayings]
Thursday, July 1st
Sumarið
Þá er sumarið komið, eða ekki, það rignir hérna í Gautaborg. Ég verð áfram hér í sumar. Það gekk ekki nógu vel að finna vinnu, þannig að ég skrifa bara lokaverkefni mitt í staðinn. En frá því ég yrti orð á þessari síðu síðast - hef fengið skammir fyrir leti hvað það varðar - þá kláraði ég prófinn, og fór svo beint til Köbenn í smá sumarfrí með fjölskylduni, sem var hér í heimsókn.
Um daginn var mér boðið í mat til Magga og Hrafnhildar. Altaf gamann að skella sér með vagni 1 í gamla hverfið mitt, Frölunda þar sem ég bjó fyrir mörgum árum síðan, í heimsókn til þeirra. Þau voru hrjáð af tölvuvandamálum, enda nota þau m$ windoz, og voru kominn með fráhvarfseinkenni af msn skorti. Því miður tókst að koma þessu í lag, annars hefði ég getað hjálpað þeim með að setja upp Linux ... he he he. En þá ríkti mikil gleið þegar msn fór í gang aftur eftir 2:a mánaða bindindi.
eyjo on 07.01.04 [link] [216 sayings]
Tuesday, May 18th
Æi, ég nenni ekki að vinna ...
Í leiðara GP í dag er reynt að hvetja til umræðu um 'veikindi' svía. Það er jú nánast annarhver maður hér í veikinda fríi eða á einhverjum bótum. Það er talið að kynslóðirnar hér allt eftir seinna stríðið hafi allt aðra sýn á samfélgasþjónustunni. Nú telst það jafn eðlilegt og hvað annað að vera á bótum frá ríkinu. Helsti galli í sænska bótakerfinu, að mati GP, er að kerfið gerir ráð fyrir því að fólk vilji vinna. Í núverandi ástandi telst hvef jafngild ástæða fyrir að taka sér veikinda leyfi og að vera pirraður út í yfirmanninn sinn -- ath. að hvef þyðir veikindafrí hér, enn ekki bara að snýta sér og halda áfram. Niðursveifla í hagkerfinu getur haft slæmari afleiðingar í þeirra kerfi en í flestum öðrum, því atvinnuleysis bætur nema það mikið af fyrri launum og hægt er að halda þessum bótum til lengri tíma meðan maður fær ekki jafn vel launaða vinnu eða betri. Fólk getur endað með hærri bætur en laun sem þau gætu fengið. Þannig helst fólk á bótum til legri tíma.
Þessi umræða þykir mér þörf í þjóðfélagi sem lítur nýju evrópusambandslöndin hörnauga. Forsetisráðherra þeirra varaði við 'sósíalískum túristum' frá gömlu fátæku austantjaldslöndunum sem gætu valsað inn í landið og lagt sig undir spenann. Sjálfur er hann þreyttur á að vera forsætisráðherra. Og, ef enginn vill ráða þennan þreytta gamla pólitíkus í vinnu mun hann væntanlega setjast að á óðalsbúgarðinum sem hann keypti nýlega og fá bætur sem miðast við forsetisráðherralaun. Jafnvel fær hann landbúnaðarstyrki frá evrópusambandinu út á búgarðinn sinn. En hver er það þá sem liggur undir spenanum?
eyjo on 05.18.04 [link] [703 sayings]
Wednesday, May 12th
So, lets find an equilibrium here!
Í dag var ég í tíma í þjóðhagfræði. Kennarinn er einhver gaur sem er nýbyrjaður í ransóknarnámi, þ.e. doktorsnámi. Hann sker sig frekar út meðal hinum; annaðhvort gömlu furðufuglum, miðaldrar stirðu köllunum eða upprenandi nördunum. Gaurinn er svona 'typa', svona 'hress gaur', nettur á því' eða hvernig maður ætti að orða þetta. Hann sér um tvo kafla í bókini og fór í gegnum nokkur dæmi í dag. Talaði frekar hátt, eins og venjulega, og fór hratt yfir þetta. Sagðist vera með útreikninga á nokkrum dæmum sem hann myndi ekki ná að fara yfir ef einhver hefði viljað bera það saman við sína útreikninga, og fussaði glettið eins og hann hefði bara verið að grínast með þetta. Viss á því að engin hafði nennt að fara í gegnum dæmin fyrirfram frekar en hann þegar hann tók þennan kúrs.
Svo á hálfgerðu hundavaði æddi í gegnum dæmin, eftir að hafa troðið tóbaks slummu undir efrivörina, hneggjaði 'ok' annarslægið yfir bekkin, án þess að gefa neinum tækifæri á að ansa. Í einu dæminu, eftir að hafa farið í gegnum stærðarinar algebra klessu, pirraður fussaði hann hátt "So, let's find an equilibrium here!". Gullin setning. Með öðrum orðum, frábær tími. Hann var ekkert að reyna að vera leiðindlegur, þvert á móti, hann er afar hjálpsamur og svarar gjarnar vitrænum spurningum. Með þessum hætti fékk maður fullt af útreikninga á dæmum til að bera sig við, það er ekki nægur tími til að leiða fólk í gegnum þetta. Annað gildir um einn gamlan og ringlaðan, þó elskulegan, karlinn hérna sem fer alltaf langt fram yfir tíma.
eyjo on 05.12.04 [link] [123 sayings]
|